10.11.2007 | 09:54
Bara fyndið
Ég sá leik Njarðvíkur og Keflavíkur um daginn, í liði keflavíkur eru 3 útlendingar í byrjunarliðinu.
Alveg hreint stjörnuruglað, en, allt til að vinna.
Þá líst mér betur á stefnu Teits Örlygs að hafa sem flesta Íslendinga í liðinu, hámark einn útlending segi ég.
Hvernig er hægt að fagna sigri sinna manna þegar 60% eru keyptir atvinnumenn???
Walker skoraði 37 stig í stórsigri Keflavíkur gegn KR | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Athyglisvert hjá þér að nefna þetta í leik þar sem Keflavík er með 2 útlendinga ofarlega í stigaskorinu en KR með 3!
Brynjar H (IP-tala skráð) 10.11.2007 kl. 11:06
Þetta á við um öll lið í úrvalsdeildini nema mitt... Njarðvík.
Greifinn, 12.11.2007 kl. 07:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.